Nafli alheims míns

Rakel Steinarsdóttir
10/09/2015 - 20/09/2015
cover á event.jpg

Nafli alheims míns
Fimmtudaginn 10. september opnaði Rakel Steinarsdóttir nýja innsetningu í Studio Stafni að Ingólfstræti 6. Hér er á ferðinni öflugt litaspil og pensilstrokur í anda Kristjáns Davíðssonar, nema efniviður Rakelar eru litrík föt barna hennar.

Sýningin stendur yfir frá 10. til 20. september og er opin frá kl 12-17

Rakel Steinarsdóttir myndlistarmaður er fædd 1965. Hún stundaði nám í Myndlista og handíðaskóla Íslands, École supérieure des arts décoratifs de Strasbourg og Edinburgh College of Art.

Hún byggir gjarnan verk sín á innsetningum í rými þar sem umfjöllunarefnið eru ýmisskonar hversdagslegir hlutir sem eru hluti af ferli eða hringrás sem er skráð eða varðveitt og sett í annað samhengi. Þannig eru verkin oftast tengd tíma, jafnvel minningum.

www.rakelsteinars.com

Dagsetningar: 
10/09/2015 - 20/09/2015